Fram á þriðjudagskvöld úoú, fram á þriðjudagskvöld...ömurlegustu sjónvarpskvöld vikunnar... Hvað er þá betra að gera en að gera eitthvað uppbyggilegt, sleppa því að vaska upp og bretta saman naríurnar úr þurrkaranum og BLOGGA í staðinn?? EWÚHÚ!??!

Það er kominn júlí - JÚLÍ gott fólk...tíminn ekkert smá fljótur að líða. Er maður þá orðinn voða gamall eða...? Alla vega fannst mér ekki tíminn svona fljótur að líða fyrir júní og ég á afmæli í byrjun þess mánaðar...

Jájá, maður er bara komin með stóru tánna á grafarbakkann! Svei mér þá...
Annars er ég nú ágætlega sátt við það sem liðið er af þessu ári, búin að gera ágætlega margt, frá því um síðasta haust...fór í ferðalagið mikla, sem dugir mér vonandi í nokkrar klukkustundir í viðbót...er búin að fara FJÓRUM sinnum í leikhús

Í byrjun mars sá ég Norway Today sem var mjög flott sýning með ungu pari að fjalla um sjáfsvíg, Baðstofuna eftir Hugleik Dagsson fór ég svo á í enda mars. Sá síðan Kommúnuna í apríl og í maí fór ég á sýninguna Laddi 6-tugur sem var nú bara snilld eins og gefur að skilja. Svona til að láta það fylgja með þá fór ég frítt á 2 sýningarnar - bara svo fólk haldi ekki að ég sé að missa mig á kreditinu

Sömuleiðis á James Blunt sem var aldeilis gaman að sjá, mínir fyrstu tónleikar...ef maður telur ekki Bubba og Megas með múhah...já sérstaklega þegar maður var ofurblekaður að horfa á Megas á Borgarfirði og var að vinna á Bubba tónleikunum...fór með kaffi upp á svið til hans og allt...my five seconds of fame...

Síðan fór ég á ljósmyndanámskeið í maí, en myndavélin mín er í sjúkraleyfi, ég þori ekki að laga hana því ég er hrædd um að lyfin hennar verði of dýr...

Alla vega, námskeiðið var snilld, mæli með ljosmyndari.is

Já og ég er búin að setja inn nokkur hundruð myndir á
http://www.flickr.com/photos/sigga_bara - endilega skoðið

17. júní eyddi ég í miðbæ Reykjavíkur í góðum félagsskap, hef aldrei verið í fríi á svona hátíðisdegi þegar allir aðrir eru í fríi, það var aldeilis æðislegt
Það var snilldarinnar Klaustursútilega um síðustu helgi...Humarhátíð og 10 ára fermingarafmæli (did someone say OLD???) um næstu helgi...svo eru heilar tvær óplanaðar helgar og svo er það Damien Rice á Borgarfirði eystri helgina fyrir versló

Svo mætti lengi telja en þetta er orðin frekar mikil ævisaga hérna oooog ég segi bara...ætla ekki allir á Humarhátíð?? Ef ekki, þá á Borgarfjörð??? Já svo ekki sé minnst á Flugeldasýninguna á Jökulsárlóni???? Oooog hvað á að gera á annan í JÓLUM???!!!





Neineinei...strikið...strikið...
Úff...The Real Housewifes of Orange County...KILL ME NOW!!!