Er að hlaða inn myndum á netið úr interrailferðinni eins frægt er orðið (skrifaði það alla vega í síðustu færslu) því miður er bara hægt að setja inn visst mikið magn í hverjum mánuði þannig að það verður smá bið með restina, en ég mun líklega taka myndamaraþonsprettinn eftir mánaðarmótin.
Myndirnar koma sjálfkrafa allar inn i vitlausri röð EN ef þið viljið sjá í réttri röð þá er hægt að klikka á "Sets" (með bláum stöfum hægra meginn við litlu myndina á mér, undir "Sigga Bára's photostream" oh mig langar í sodastream tæki) og velja Interrail. Þá eiga myndirnar að vera réttri röð. Reyndar gæti ég stillt þetta á síðunni þannig að þetta sé miklu, miklu einfaldara og augljósara en þá hefði ég ekkert til að skrifa um. Svo er ég að fara að skrá mig á ljósmyndanámskeið hjá ljosmyndari.is i lok maí og hlakka mjög svo mikið til, þá sér maður áreiðanlega allan aðskotann að þessum myndum sem maður er búinn að setja inn á veraldarvefinn, en hverjum er ekki sama! 

Þessi er pínu uppáhalds
Ég get vart orða bundist hversu mikið ég hlakka til sumarsins, bara að fá sól og suðræna tónlist, prófa að vera í Reykjavík í fyrsta sinn yfir sumar (sem ég hef nú ekki fengið mikil meðmæli fyrir en hver er sinnar...gleði smiður er það ekki??) og það er bara gaman að prófa nýja hluti. Vera endurnærð eftir skóla-pásu-veturinn (í guðanna bænum próf-fólk, ekki drepa mig, ég hef alveg verið í ykkar sporum og styð ykkur heilshugar
), njóta lífsins og búa sig undir næstu vetrarhrið
*rífa-nálina-af-vínilplötu-hljóð*
Hvenær í andskotanum byrjaði ég að skrifa svona??? Verð að hafa þennan síðasta kafla skáletraðan, en það finnst mér eitt af því væmnasta sem hægt er að gera við texta. Shit hvað ég missti kúlið þarna maður...
PRUMP!