18.12.2006 21:15:41 / siggabara

Varúð - mergjaður húmor í gangi...

Vá, nú er bara eitt próf eftir, maður er alveg að sjá fyrir endann á þessu! Svo tekur auðvitað jólageðveikin við en það er allt annað bloggefni... Úff, ég fæ grænar við tilhugsununa að þurfa að fara í Kringluna eða Smáralind eftir próf og troðast undir í röðinni þar sem ég þarf að berjast fyrir því að geta borgað litlu bómullarbrækurnar sem ég hef ákveðið að gefa þessi jólin. Ójá, það verður naríuþema í ár. Einhver magnafsláttur af þeim í Bónus og svo get ég teiknað á þær og föndrað svona slaufur til að gera þetta persónulegra... Nei, nei ég er nú bara að ljúga, ég ætla ekkert að gefa nærbuxur...þó svo það væri nú alls ekki ósniðugt... Hmm...

Hey, ég man þegar ég var einu sinni í leikriti og átti að segja nærbuxur í staðinn fyrir nærsveitir og það fóru allir að hlægja...  Það voru góðir tímar *fiðlutónlist og fortíðarmynd úr fókus séð í gegnum botninn á stóru bjórglasi* Reyndar lenti ég líka í því, í sama leikriti að labba á hurð á leið minni baksviðs í myrkrinu...hahha, það var reyndar ennþá fyndnara, ég fer alltaf að hlægja þegar ég hugsa um þetta... ERUÐI AÐ DJÓKA -HLÆgJA!!!! Ég þarf að láta dáleiða þetta auka gé út úr hausnum á mér... (popplag í gé - þið voruð líka að hugsa það HAH!!)

Vá hvað ég á eftir að lenda í þessu...fyrir utan stríðið samt..http://mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1242207!!! Ef þetta er ekki fyrirmynd þá veit ég ekki hvað...nei ég bara VEIT EKKI HVAÐ!!! 8|

Ég kveð að sinni og minni ykkur á að lífið er NÆRBUXUR HAHAHAH......

:^).....oohhh....:^)


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 20:38:28 / siggabara

Steinunn, ég blogga ekkert meira en þú. HAH!

Vá hvað ég hlakka til að fara HEIM og merkja mér svæði í sófanum... (Já. Ég ætla að láta það gossa beint í leddarann.) Alltaf jafn frábært (nei) að búa í ferðatösku, get ekki sagt annað #$%&/ Ég held ég væri nú löngu búin að kaupa mér íbúð ef ég hefði einhver efni á því...who am I kidding, ég á aldrei eftir að hafa efni á því! Best að smella sér bara á lán.. Svo er það nú, hvar ætti maður að kaupa sér íbúð? Hmm... Spurning um að fjárfesta bara í tjaldi í staðinn, fyrst maður er svona ótrúlega óákveðinn. OH ég hefði átt að kaupa mér HÚSBÍL!!! DAH!!! Alltaf getur maður verið vitur eftir á :D

Ræræræææ http://mbl.is/mm/frettir/togt/frett.html?nid=1241609  ætti maður að vera fyrri til og hætta, mig langaði svo til að vera með blogg ef ég færi til úglandía til að segja ferðasöguna og svona… Fólk virðist ekki vilja lesa blogg þegar manneskjan sem skrifar hefur ekkert að segja ha hm ha? Er það ekki einmitt í mínu tilviki…NEI ÉG FÆ EKKI NÓG MÚHAHAHAHA!!!!!

Úúúúú, mér finnst allir vera að toga mig út til útlanda...mig dauðlangar að fara til Afríku…og reyndar út um allt.. (Ath. þessir allir eru allar raddirnar í höfðinu á mér...hvenær ætla þær að verða sammála!!! Það er enginn agi í þessum haus!)

Ef þetta væri teiknimynd myndi ég líklega lemja sjálfa mig í hausinn með hamri, svo kæmu stjörnur og svoleiðis skemmtilegt…


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 02:35:25 / siggabara

HAHAHAHAHAHA!!!!

TVÍBURAR 21. maí - 20. júní
Málið er ekki hvað er í vændum, heldur hverjir - ekta og skemmtilegir einstaklingar, frábær félagsskapur. Bónus kvöldsins: Rómantíkin gerir þig ónæman fyrir kulda, hungri og bara hvaða óþægindum sem er.
Ójá, I'm getting lucky annað kvöld! Þetta er aldeilis breyting á plönum, ég ætlaði að vera að læra undir föstudagsprófið en mér verður greinilega boðið á deit! Það gæti ekki verið meiri kaldhæðni í þessu, alla vega ef þetta myndi gilda fyrir kvöldið í kvöld - sit alein uppi í skóla alveg að frjósa úr kulda og var eeeeinmitt að hugsa hvað ég væri svöng (sláandi fréttir!) þegar ég slysaðist til að skoða stjörnuspánna fyrir morgundaginn.
 
Sjæse, fékk mér kaffi áðan og það er ekki séns að ég geti sofnað á næstunni... (hahaha, reyndar var það bara latte sem er svona 70% mjólk...eeeeen ég ætlaði nú ekki að segja frá því! :p ) Spurning um að læra af síendurteknum mistökum og drekka ekki kaffi fyrir háttinn! Eeeen það bætir þó úr skák að það er svona 99,9999998% meiri ró hérna á kvöldin heldur en á daginn...þannig að ég get verið hæper að blogga í næði múhahaha ;)
Ooooooooooog í skrifuðum orðum kveikir einhver æðisleg manneskja á simpson þættinum sínum og stillir hljóðið á fullt!!!!!!!! FRÁBÆRT! Ég ætla að mæta með saxafón hérna annað kvöld, svona til að geta svarað fyrir mig ef e-r er með læti heheheh ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 17:29:17 / siggabara

Já, já JÁÁÁÁÁÁÁ!!!!!

Úff...það er alveg yndisleg tilfinning að skilja loksins eitthvað sem maður er búinn að rembast við að læra í heilan vetur og fá svo allt í einu ljósaperuna upp á hausinn. Ég ætla að leyfa mér að segja að það sé svona menntunar-fullnæging. Svo þegar maður er búinn að sitja heilann vetur í áfanga (afsakið, KÚRS) sem maður heldur að maður skilji ekki, svo kemst maður að því að maður miklaði þetta svoooo mikið fyrir sér og þetta var allan tímann svo einfalt og á nokkrum klukkustundum pússlar maður öllum kennslustundunum og heilabrotunum saman og kemst að því að maður er ekkert svo vitlaus. Það ætla ég mér að kalla menntunar-raðfullnægingu.

Ef við tökum þessa kenningu og setjum mig inn í hana, þá komumst við að því að ég ætti að vera ansi sæl, rauð í kinnum og gjörsamlega í skýjunum. Það er að segja fyrir síðustu tvö próf… Ég vil þó koma í veg fyrir allan misskilning og segja fólki að ég er ekki að fara að koma út með tíur og níu í þessu drasli, hvað þá að ég sé eitthvað að gamna mér með þjóðhagfræðibókunum úti í horni stynjandi og flissandi - það er ekki það sem ég er að segja með þessari færslu.

En nú er ég að lesa fyrir næsta próf sem er á föstudaginn, ef þið viljið vita hvernig þetta próf er þá er það einhvern veginn svona í mínum huga:

Þetta er eitthvað svakalegt 100% krossapróf og ef þú klúðrar einhverju þá má segja að þú farir beinustu leið til helvítis… Eeeeen, þá er spurning hvort maður ætti ekki bara að fara aftur að læra! Ég get ekki sagt að ég sé búin að vera að fá það á tvist og bast yfir þessu fagi þar sem ég er ekki alveg að skiilja allt, en ég vona nú að ég fari ekki bara alveg spól**** í prófið...

Jæja, best að reyna að fá'ða... ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 02:04:48 / siggabara

Spariði nettenginguna, prentið út eða hættið að skoða...

Andsk****, helv****, dj****, ra*****, ti***, pí**, pru**, nefhá*.... Nei grín, ég er ekkert í vondu skapi, ég er í mjög góðum sköpum bara. Var í fyrsta prófinu í dag og ég veit gjörsamlega ekki baun hvernig mér gekk, var svo ofur ánægð með mig í fyrri hlutanum, fannst ég vera ofurklár, gerði svo 1 dæmi sem gildir 20% og held ég hafi gert rétt, alla vega ekki allt kolrangt. Þegar ég var búin með það dæmi þá langaði mig bara að hoppa upp og fara í jólafrí, var loksins komin með smááá fíling fyrir jólunum.. En svo kom upp á daginn að skipulagsleysið í mér gerði það að verkum að ég náði ekki að klára prófið alveg...en vona að kennarinn sé nú ekki alveg svo harðbrjósta að kveikja í prófbókunum og hlægja upp í opið geðið á manni til að skemmileggja allt fyrir manni...

Svo ég réttlæti þetta nú enn frekar fyrir mér þá er mér næstum sama hvernig mér gengur í þessum prófum (jeminn eini ég trúi ekki að þú sért að láta þetta út úr þér barn!) ég er næstum alveg tilbúin til að snúa mér að einhverju öðru ef hluti #2 er ekki nógu skemmtilegur.. Spurning um að prófa einhverjar aðrar deildir í þessum háskóla, félagsfræðideildin er nú svoldið heit þessa dagana, eða ætti maður bara alveg að beila á þessu menntakerfi og smella sér bara í bakpokaferðalag, fá sér drella og kúkabuxur, byrja aftur að reykja (3j mánaða afmæli áðan, hélt upp á það með því að...fá mér subway bara...crap!) og fara þá út í eitthvað sterkara.. Byrja að yrkja ljóð um tómar mjólkurfernur og krómaða hurðarhúna...

Reyndar er ég að spá... Ég var nú að horfa á bráðskemmtilega teiknimynd með litlu frænku minni áðan og datt í hug að mig langar ekkert voðalega mikið að verða fullorðin.. Ég held það sé bara ekkert fyrir mig. Langar bara að vera kjáni, hef alltaf verið það og það bara fer mér svona líka drulluvel. Svo þarf maður að bera svo mikla ábyrgð þegar maður er svona fullorðin (jiii, ég fæ gæsahúð þegar ég skrifa þetta...hehehe samt, ég er eitthvað svo full orðin...já...önnur pæling, öööö) og þegar ég get varla borið ábyrgð á sjálfri mér (sjáiði bara hvað klukkan er, ég get ekki drattast til að fara að sofa á skikkanlegum tíma!) þá vill maður kannski ekkert vera að taka ábyrgð á neinu öðru..

 Er þetta kannski svona klassa-bíómynda-case? Kauptu þér plöntu og sjáðu um hana í x ár. Ef það gengur vel skaltu fá þér hund eða kött. Ef það tekst ertu tilbúin/n út í lífið (er þetta kannski bara svona einfalt?) En ef hvorugt þessara hluta tekst þá skaltu bara gleyma þessu og kaupa þér bólstrað herbergi í hlöðu nálægt Fáskrúðsfirði. (Ath. ég hef ekkert á móti...né með reyndar...Fáskrúðsfirði, þetta staðarnafn datt bara inn í hausinn á mér og þar sem ég er með svo mega frjótt ímyndunarafl ákvað ég að smella þessu bara inn..þori ekki annað en að hafa það á hreinu. Já og ég skrifa oft hluti hérna inn sem ég meina ekki... En ef fólk er ekki að fatta það verð ég að benda þeim á að skoða bara önnur blogg J múhahah, uss hvað maður getur verið fyndinn...

Já og annað...ég skammast mín fyrir hvað ég hef verið léleg að blogga í vetur (sjáið bara stærðina á þessari massa færslu VÓ!) og hvað ég hef verið léleg að skoða annara manna blogg til að fylgjast með málum sem koma mér ekki baun við. Ég vil bara biðjast afsökunar og vona að ég geti einhvern tímann látið gott af mér leiða í þessu samfélagi í staðinn fyrir allt sem þið bloggfólkið hafið gefið mér...

Ókei....dj****... Mér dettur ekkert annað bull í hug þannig að ég verð nú að fara að kæfa mig í svefn – og í skrifuðum orðum færðist ég niður á aðra A4 blaðsíðu.... *family guy hlátur*

Tjú, tjú.


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 22:16:41 / siggabara

Oh boogers...ekki buggers...heldur boogers, bé o gé a...

Kynnir: Jæja, þá er það komið, það sem allir hafa beðið eftir, við þekkjum það öll og nú er það komið til þess að létta okkur lífið (eða stytta?), hið heimsfræga, eldhressa og feykivinsæla – bjóðum það velkomið á sviðið – JÓLAPRÓFAKVEFIÐ!!!!! Gefum því gott klapp (Lýðurinn ætlar gjörsamlega að tryllast og þakið ætlar að rifna af húsinu eftir allt hóstakjöltrið) 

Jebb, ég kemst ekki áfram með leikritið sem ég ætlaði að semja. En já, ég er ekki búin að vera nógu dugleg að taka vítamínin mín, borða holla fæðu né hreyfa mig og ég er ekki búin að passa að láta mér ekki verða kalt á tásunum og í síðustu viku fór ég út með pínu blautt hárið... Þannig að þau örfáu grundvallaratriði sem maður á að gera og vita og kunna eftir 22 ára lífsleið hrynur á mann í einni stórri horklessu.  

Einmitt á réttum tíma. Prófin eru að byrja núna á laugardaginn og eru búin þann 21. Fimm stykki eru á leiðinni og ég er svooooo ekki í stuði fyrir þau núna þar sem hausinn á mér virðist vera á einhverju mótþróaskeiði, vill bara að ég sjúgi upp í nefið, samt hnerra og snýta og eiginlega bara hanga undir heitu mjúku sænginn og slaaaaaaka....ooooog slaaaaaka..........oooog slaaaaaka...........og svo kyssa... 

En jæja, það þýðir ekki að væla.........eeeeeeeeen ég ætla samt að gera það... Búhú. Búhúhú. Búhú.

 

Já og ef það eru stafsetningarvillur þá sé ég ekki á skjáinn, er með eitthvað gífurlegt hnerrsyndrome í gangi...(sexí, sexí, strákar af hverju er ég á lausssuuuuu??? horhorhor ha?)


» 4 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  42  Alls: 83946