Halló...ég veit ekki hvar ég á að byrja, en ég var víst búin að
lofa að blogga, þannig að here goes nothing.
Í augnablikinu er ég inni í stofu, í Árhúsum, heima hjá
turtildúfunum Þóreyju og Vésteini. Ég er búin að líma mig fasta við
þau í nokkra daga og ég veit að þau verða guðslifandi fegin að
losna við mig á endanum. Ég er ekki búin að segja þeim að ég er
komin með íbúð í næstu götu. Ég lenti í Kaupmannahöfn...uuu...um
daginn (maður er ekki beint með tímaskynið í lagi...ef það er
einhvern tímann í lagi) síðasta föstudag og rölti aðeins um bæinn
rétt á meðan lestin þeirra skötuhjúa smeygði sér eyja á milli.
Þaðan lá leiðin til Malmö í Svíþjóð (20 mínútur í lest á milli
landa, ekki alveg það sem maður á að venjast) þar sem við tékkuðum
okkur inn á hótel.
Okkur fannst of langt að fara niður í miðbæ þannig að við fengum
leiðbeiningar um hvernig væri hægt að komast á veitingastað/bar
nálægt. Konan í afgreiðslunni spurði okkur hvort við værum komin á
mótið. Við spurðum einfaldlega hvaða mót, mér datt í hug hvor það
væri kannski bjórþambkeppni sem ég gæti sýnt nokkra takta í... En
þá sagði hún okkur að það væri verið að keppa í bardagaíþróttum í
nágrenninu, JiuJitzu var það víst... Já, við erum greinilega svo
mössuð og óhugnanleg, hljótum að vera að taka þátt í þannig, eins
og maður er nú líka léttur á fæti... Restinaf köldinu eyddum við í
að borða 2ja kílóa hamborgarabuff, drekka bjór og spila jöklamanna,
helvíti fínt bara, svo maður leyfi sér að sletta aðeins.
Daginn eftir mættum við Arnóri og Marie úti á götu fyrir algjöra
tilviljun. Við fórum svo öll niður í bæ að skoða okkur um í Malmö
og reyndar eyddum við öllum deginum í að leita okkur að einhverju
gulu til að vera í, því það var víst þemað í partíinu, það var
teiti sem við gleymum seint. En ég held ég geti ekki lýst þessari
upplifun í orðum, þetta verð ég bara að leggja inn í
gleðibankann.
Daginn eftir partíið lögðum við af stað til Smálandanna, heim
til Marie og Emils í Kattholti og allra þeirra. Foreldrar hennar
eiga heima úti í miðjum skógi og pabbi hennar er skógarhöggsmaður.
Það er mjög fallegt þarna i skóginum og í þessum hluta Svíþjóðar.
Við fórum í labbitúr og skoðuðum okkur um og sáum slatta af e-i
tegund af hjartardýrum, en sáum ekki elginn sem við vorum að bíða
eftir, en það kemur bara næst. Ójá, svo sváfum við á
drauga-byggðarsafni. Já eða húsi sem var svo gamalt að á eftri
hæðinni var allt eins og á byggðarsafni. Við fengum ekki að vita
söguna á bakvið húsið daginn eftir guði sé lof.
Við komum til Árhúsa á mánudagskvöldið og horfðum á Bruce
Willis vera töff. Það er ægilega kósí hérna og allt morandi í
íslendingum, get ekki sagt að manni finnist maður vera i útlöndum.
Við erum svo að fara til Berlínar á föstudaginn að skoða okkur um
og hitta Steffi, sem var að vinna á Hala í fyrrasumar. Það verður
stuðstuðstuð. Ætlum alla vega að fara í dýragarð og auðvitað skoða
restia af múrnum og maaargt fleira.En núna er komið nóg, bið að
heilsa í bili!