25.12.2007 21:41:35 / siggabara

Fögur jólahugvekja? Nei,

Jólin eru víst löngu komin, maður er ekki alveg eins mikið jólabarn núna og þegar maður var...barn. Fengum hvít jól í nokkra klukkutíma en svo vaknaði ég við rigninguna sem dundi á glugganum í morgun - HAH seeeint í dag! - og það var nú ekki til að auka ójólafílinginn. En þetta er gaman samt sem áður. Fékk 4 bækur í jólagjöf og er mjög ánægð með það, ágætt að fá ekki bara of litlar ullarbrækur eða taðreykt og ólseigt hangikjet eins og svo oft áður...

Fyrst ég var búin að trekkja tölvuna í gang þá vildi ég slæða inn lítilli jólakveðju til þeirra sem nenna að lesa þetta ennþá, hún má alls ekki vera of stór

Gleðileg jól :D

Er jólageðveikin að fara með þig líka?


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 22:28:04 / siggabara

Blogghólíó

Þá er ég komin heim, reyndar fyrir meira en viku síðan og líst bara ekkert á blikuna. Nei grín, það er voða fínt að koma heim, þó svo að það mætti vera aðeins hlýrra, ég hef alltaf verið aðeins meira sumarbarn heldur en hitt þannig að á veturnar leggst ég í dvala - eða smákökustauka. Ójá, nýju jólafötin verða orðin allt of lítil áður en helmingurinn af jólasveinunum verður kominn til byggða - en vonum þá bara að ég detti inn á gott tilboð hjá Seglagerðinni og geti splæst í gott efni í samfesting með netakúlum sem skraut svo ég fari ekki í Jólaköttinn. Ekki það að greyis kisulóran myndi ekki gefast upp þegar hún væri komin hálfa leið upp á hné en það er ekki mitt vandamál. (Um hvað er ég að tala??)

Ég er ansi sátt við þetta ferðalag sem ég var í, mjög gaman að skoða sig um og sjá og gera eitthvað nýtt. Vildi að ég gæti fundið mér einhverja vinnu sem felst í því að gera ekki alltaf það sama, helst alltaf að gera eitthvað nýtt, fengi gott kaup að sjálfsögðu og gæti lifað áhyggjulausu lífi þangað til ég fæ gláku og bara veeerð að reykja hass. Hah, því ég er svo mikið í því eða þannig. Sem minnir mig á það, meðan ég var í Danmörku kíkti ég yfir í Kristjaníu, hostelið sem ég var á var svo nálægt. Rölti þangað um hábjartan dag og skaust þaðan út aftur alveg skjálfandi á beinunum, yfir mig hneyksluð yfir því að þar höfðu verið gamlar konur hjólandi um og konur með barnavagnana sína innan um skuggalegu gaurana með urrandi varðhunda og sjúskað unga fólkið sem var að reykja eitthvað annað en bláan Capri ef þið skiljið hvað ég á við... Eða kannski er ég bara aðeins of saklaus sveitastelpa? Gæti verið!

Ég tók rúmlega 2000 ef ekki 3000 myndir í þessari ferð en eins og staðan er núna þá efast ég um að þær muni nokkurn tímann rata hingað inn sökum ómældrar leti og óvissu um staðsetningu... En ég vil varpa fram einni spurningu á eftir lítilli dæmisögu. Einu sinni var stelpa sem var fyrir löngu búin að búa sér til "myspace". Hún var ekki alveg nógu dugleg að lesa sér til um þetta netfyribæri þannig að hún sleppti því bara að nota það. Einn góðan veðurdag opnar hún svo síðuna sína og sér að allar skipanir sem áður voru á ensku eru nú allar á dönsku. Þessi stelpa lærði dönsku í mörg ár í grunn- og gagnfræðiskóla en þar var henni ekki kennd dönsk tölvuorðatiltæki og hugtök þannig að nú er hún í djúpum skít. Hvernig í ands******* ***** ** ************ er hægt að laga það???!!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  16  Alls: 83882