08.07.2007 09:53:04 / siggabara

Must.....stay......awake.............zzzzzzzzz

Mongó bongó blíða. Er alveg að detta ofan á lyklaborðið, er svoldið sybbin... Það voru snilldarinnar tónleikar hér í gær, ekkert smá góðir strákarnir maður, enda flestir frændur mínir (hvað??? maður verður nú að monta sig múhaa ;)) Já, þakka ykkur fyrir gífurlega þáttöku í skoðanakönnuninni, ég get bara ekki ákveðið hvort ég eigi að byggja mér fjallakofa uppi í klettum og fara að rækta geitur, strokka og svona...eða fara að gera eitthvað annað. Þetta hljómar nú ekkert svo illa, bara koma upp ostaverksmiðju og selja mysu og svona...

Já...nei.

 Annars er ég orðin leið á að sjá alltaf sömu hel********, *****, *************** færsluna hérna inni þannig að ég ákvað að henda annari í ofninn, svona fyrst maður er bara að bíða eftir fólki til að koma að éta morgunmat... Ussussussssss....úps, ég sofnaði pínu... 8|

Fyrir þá sem hafa áhuga þá hefur lítið sem ekkert komið út úr rannsóknum mínum á ferðalögum, ég er mest í því að láta mig dreyma, svo er ég svo útúrsýrð þegar ég kem heim eftir vinnu að ég hef ekki rænu á að skoða þetta... En ég er alla vega búin að endurnýja vegabréfið mitt, það er nú fyrsta skefið. Síðan er það held ég bara Heims Atlasinn og úllendúllendoff.... ;)

Best að fara að drullast til þess að gera eitthvað!!!!!

 

 
Ég veit ekki af hverju en mig hefur lengi langað að eiga mynd af mér með tígris eða ljónsunga...þekki ekki muninn... 

» 3 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  19  Alls: 84026